Fundurinn
fór þannig fram að fyrst fór umræða af stað um ráðstöfun hagnaðar síðustu
árshátíðar og átti að fara fram kosning um tillögur félaga en ákveðið var að
fresta þeirri kosningu þar til á næsta fundi og er tillaga um að fullgera
tillögur og bera undir atkvæði. Sigmar
B. Hauksson, formaður Skotvís hélt hnitmiðaðan fyrirlestur um veiðar á Íslandi
og hvernig þróunin hefur verið í Rjúpnastofninum hinum íslenska svo og dreypaði
hann á mögulegri fjölgun Hreindýra um gjörvallt Ísland.
Sigmar
ræddi um baráttu félagsins um nýtingu náttúrunnar í þágu útivistar og veiði og
kom inn á hvernig stjórnvöld hafa lagt stein í götu hins almenna til að njóta
tilvistar manns og náttúru með nýrri löggjöf um þjóðgarða og nýtingu þeirra. Smellið hér til að skoða fundargerðina í heild sinni. Þökkum Sjonna og Hlyn fyrir frábæran fund. |