Fundurinn fór þannig fram að fyrst fór umræða af stað um ráðstöfun hagnaðar síðustu árshátíðar og átti að fara fram kosning um tillögur félaga en ákveðið var að fresta þeirri kosningu þar til á næsta fundi og er tillaga um að fullgera tillögur og bera undir atkvæði. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotvís hélt hnitmiðaðan fyrirlestur um veiðar á Íslandi og hvernig þróunin hefur verið í Rjúpnastofninum hinum íslenska svo og dreypaði hann á mögulegri fjölgun Hreindýra um gjörvallt Ísland. Sigmar ræddi um baráttu félagsins um nýtingu náttúrunnar í þágu útivistar og veiði og kom inn á hvernig stjórnvöld hafa lagt stein í götu hins almenna til að njóta tilvistar manns og náttúru með nýrri löggjöf um þjóðgarða og nýtingu þeirra. Smellið hér til að skoða fundargerðina í heild sinni. Þökkum Sjonna og Hlyn fyrir frábæran fund. |