RT6 Ganga í klúbbinn

RoundTable 6 Reykjavík

Merki RT6: dreki og sverð vafin um rauða sexu með Round Table merkinu

Ungir menn í Reykjavík sem hittast yfir veturinn til að kynnast, læra eitthvað nýtt og láta gott af sér leiða. Við sama borð síðan 1980.

Tileinka.
Aðlaga.
Bæta.

Kjörorð Round Table, úr ræðu prinsins af Wales árið 1927.

RT6 er einn sextán Round Table klúbba á Íslandi. Í honum eru menn úr öllum áttum og ólíkum störfum sem vilja víkka sjóndeildarhringinn í góðum félagsskap.

Aldur
Félagar eru á aldrinum 20 til 45 ára. Við 45 ára aldur er staðið upp frá borðinu og yngri menn taka við.
Inntaka
Round Table er ekki leynifélag, en nýir félagar koma inn að tilnefningu virks félaga.
Um allan heim
RT6 tilheyrir Round Table Ísland og Round Table International, hreyfingu sem varð til í Bretlandi árið 1927.
Að gefa til baka
Round Table snýst líka um samfélagið, og við leggjum okkar af mörkum til þess.

Vetur hjá RT6

Starfsárið fylgir vetrinum. Tveir félagar sjá um hvern fund og ráða hvað er gert, svo enginn fundur er eins.

Félagar fá leiðsögn um þyrlu Landhelgisgæslunnar í flugskýli Félagi heldur fyrirlestur um Bitcoin fyrir hópinn Félagar fagna með trommukennara eftir trommutíma Félagar við langborð með mat og bjór Fullur salur á fundi, með fána RT6 á borðinu
Heimsóknir
Félagar fá leiðsögn um þyrlu Landhelgisgæslunnar í flugskýliVið lítum bak við tjöldin hjá fyrirtækjum og stofnunum, frá þyrlum Landhelgisgæslunnar til kappakstursherma.
Fyrirlestrar
Félagi heldur fyrirlestur um Bitcoin fyrir hópinnFróðleikur um allt milli himins og jarðar, frá fjármálalæsi og Bitcoin til kynlífs.
Óvissuferðir
Félagar fagna með trommukennara eftir trommutímaÁfangastaðurinn er leyndarmál þar til komið er á staðinn. Stundum koma makar með. Stundum endar kvöldið með trommum, stundum með öxum.
Kvöldverðir
Félagar við langborð með mat og bjórGóður matur, kaldir drykkir og umræður sem enda sjaldan á réttum tíma. Round Table er jú borð.
Landsþing og ferðir
Fullur salur á fundi, með fána RT6 á borðinuVið hittum aðra klúbba á landsþingum og fundum heima og erlendis. Stundum komum við heim með bikar.

Sama borð síðan 1980

Á hverju ári sest nýr formaður í stólinn. Snúðu borðinu og sjáðu hver sat hvenær.

Dragðu borðið, smelltu á ár eða notaðu örvatakkana.

Heiðursfélagar RT6

    Allir formenn

      Ertu 20 til 45 ára?

      Inn í Round Table kemstu að tilnefningu virks félaga. Þekkirðu engan í RT6? Sendu okkur línu. Við bjóðum þér á fund sem gestur og þú sérð sjálfur hvort þetta er fyrir þig.